Í miðju fátækrahverfi í Nairobi hefur hin kraftmikla Mama Lucy ásamt samstarfsfólki byggt upp skóla fyrir íslenskt söfnunarfé. Um 40 börn á grunnskólastigi eiga sér íslenska stuðningsforeldra, sem vonast til að geta létt þeim lífið og opnað þeim möguleika á bjartri framtíð.
Auk þess njóta nú 45 fyrrum nemendur Little Bees skólans stuðnings íslenskra stuðningsforeldra til náms í framhaldsskólum.
Nokkur Little Bees börn hafa þegar útskrifast úr framhaldsskóla og þá lýkur formlegum stuðningi Vina Little Bees. Við fylgjumst hins vegar spennt með sigrum þeirra og frekara námi og nokkur þeirra stunda háskólanám með hjálp stuðningsforeldra og lítilla hópa.
Við erum þakklát fyrir öll framlög og bankareikningurinn okkar er 0303-26-72140, kt. 580107-2140.
Kostnaður við rekstur Vina Little Bees er enginn. Allur peningur sem kemur inn á reikning hjá okkur fer út til Kenía.

